11.06.2019
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú í nýliðnum maí hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess og hafa í huga við lestur að niðurstöðurnar í t.d. skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var laust fyrir hádegið þ. 11. júní 2019.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 514 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 103 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.636,9 árskúa á þessum 514 búum var 6.200 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á þessum 514 búum var 47,9.
Meðalnyt árskúa var á síðustu 12 mánuðum, mest á búi Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, hinu sama búi og undanfarna mánuði, þar sem hver árskýr skilaði nú að meðaltali 8.495 kg.
Lesa meira