Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Ráðunautar sinna rekstrarráðgjöf og áætlanagerð, nýsköpunarráðgjöf auk ráðgjafar á sviði bútækni. Hjá okkur færðu heildstæða ráðgjöf fyrir þinn rekstur.
Hafið samband í síma 516 5000 eða á netfangið rml@rml.is
Ráðgjöfin:
Getur samanstaðið af rekstrarráðgjöf, áætlanagerð og nýsköpunarráðgjöf auk ráðgjafar á sviði bútækni.
Meginverkefni er að veita heildstæða og þvegfaglega ráðgjöf.
Markmið starfsins er að greina og meta stöðu núverandi reksturs viðkomandi rekstraraðila og benda á styrkleika og veikleika í rekstri og jafnframt að veita heildstæða ráðgjöf til að ná enn betri árangri í núverandi rekstri. Á sama hátt er markmiðið að benda á nýja möguleika ef vilji er til þess að takast á við nýja atvinnustarfsemi eða þróa aðra atvinnustarfsemi samhliða þeim rekstri sem fyrir er á viðkomandi lögbýli.