11.03.2020
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum febrúar hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var skömmu fyrir hádegi þ. 11. mars 2020.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 517 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 108 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.748,7 árskúa á þessum 517 búum var 6.413 kg eða 6.673 kg OLM (orkuleiðrétt mjólk)
Lesa meira