Niðurstöður skýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í nóvember 2018
11.12.2018
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum nóvember hafa verið birtar á vef okkar. Ákveðnar breytingar voru gerðar nýlega og má vísa aftur til þess hér að Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður í nautgriparækt kynnti þær í grein á bls. 45 í Bændablaðinu þ. 1. nóvember sl. Rétt er að geta þess og hafa í huga við lesturinn að niðurstöðurnar í t.d. skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var um sl. miðnætti.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 534 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 105 búa þar sem eingöngu var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Lesa meira