Skil skýrsluhaldsgagna í sauðfjárrækt

Síðasti skiladagur skýrsluhaldsgagna í sauðfjárrækt vegna ársins 2014 er 31. desember nk. Skilin eru mánuði fyrr en fyrir ári síðan og er breytingin tilkomin vegna breytinga á reglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.

Starfsfólk RML svarar fyrirspurnum um skýrsluhaldið og aðstoðar eftir fremsta megni bændur við að ganga frá haustskýrslunum. Síminn hjá RML er 516-5000. Þar sem marga hátíðisdaga ber uppá virka daga í lok mánaðarins eru bændur hvattir til að nota tímann vel næstu tvær vikurnar. 

Úr 9. gr. reglugerðar um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu nr. 1160/2013.

„Fjárstofn skal skráður í skýrsluhaldskerfi Bændasamtaka Íslands. Sauðfjárskýrslum hvers árs skal skilað eigi síðar en 31. desember. Bændasamtök Íslands skulu senda til Matvælastofnunar skrá yfir þá framleiðendur sem skilað hafa skýrslum og þá fram­leiðendur sem ekki hafa skilað skýrslum eigi síðar 5. janúar. Matvælastofnun er skylt að tilkynna framleiðanda fyrir 15. janúar standist hann ekki kröfur varðandi skil. Fram­leiðanda skal veittur að hámarki fjögurra vikna frestur til að skila sauðfjárskýrslum og koma á framfæri andmælum sínum. Framleiðandi sem ekki skilar sauðfjárskýrslu innan frests telst ekki uppfylla skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.“ 

okg/eib