Kynbótasýning á Akureyri 14.-16. maí.

Kynbótasýning fer fram á félagssvæði Léttis á Hlíðarholtsvelli á Akureyri dagana 14. til 16. maí ef næg þátttaka næst.  Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni http://www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á morgun, þriðjudaginn 6. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 20.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 15.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 13.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 10.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí.

Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir liðnum "Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar". Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir stóðhesta fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir inni í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Stóðhestum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

agg/okg