Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Kynbótasýning fer fram á félagssvæði Léttis á Hlíðarholtsvelli á Akureyri dagana 14. til 16. maí ef næg þátttaka næst. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni http://www.worldfengur.com þar sem valið er Skrá hross á kynbótasýningu.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á morgun, þriðjudaginn 6. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 20.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 15.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 13.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 10.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí.
Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir liðnum "Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar". Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir stóðhesta fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir inni í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Stóðhestum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.
agg/okg