Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Stóðhestar sem hlutu afkvæmaverðlaun árið 2020 voru ellefu, þar af voru 6 hestar sem hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og 5 hestar sem hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Skaginn frá Skipaskaga var efstur hesta með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og hlaut Orrabikarinn á Landsýningu kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum 2020. Skýr frá Skálakoti stóð efstur heiðursverðlaunahesta á sömu sýningu og hlaut æðstu verðlaun sem stóðhestur getur hlotið í íslenskri hrossarækt, hinn eftirsótta Sleipnisbikar.
Samantekt um þá afkvæmahesta sem hlutu verðlaun árið 2020 má sjá í myndbandi: Afkvæmahestar til verðlauna 2020
Vert er að taka fram að mismæli eru í myndbandinu og er það leiðrétt hér með að Óskasteinn frá Íbishóli sé vissulega undan Ósk frá Íbishóli en ekki Brún og beðist er velvirðingar á þessum mismælum.
/okg