Skráningar á miðsumarssýningar 2024

Opnað verður á skráningar á miðsumarssýningar mánudaginn 24 júní kl. 9:00. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML www.rml.is en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. Nánari leiðbeiningar varðandi skráningar er að finna á heimasíðu RML.
Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umsjónamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umsjónamenn hrossa til að skrá tímanlega.
RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Gerð er undantekning á þessu fyrir sýninguna á Stekkhólma á Fljótsdalshéraði en þar verða að nást 15 skráningar svo sýning verði haldin.

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sýningagjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 40.675 kr. en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm 31.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð og greiðsla framkvæmd, birtist hrossið strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna. Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.

Endurgreiðslur á sýningagjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt með tölvupósti fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku á netfangið rml@rml.is. Endurgreitt er 23.185 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 17.670 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Þessar endurgreiðslur miðast við núverandi forsendur. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 15. ágúst. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:
⦁ Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
⦁ Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.
⦁ Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
⦁ Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
⦁ Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar og skráning liggi fyrir í WorldFeng. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði, verður án undantekninga vísað frá sýningu strax hjá mælingamanni. Sýningargjald er ekki endurgreitt í slíkum tilfellum.
Ef þess er nokkur kostur þá er fyrir alla aðila farsælast að skrá rétt hross á sýningu strax í upphafi því það einfaldar alla vinnu á sýningastað. Munum því eftir að taka sýni og röntgenmyndir í tíma.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Upplýsingar um kynbótasýningar

Skrá á kynbótasýningu

/hh