Kúaskoðun: Niðurstöður og samræmingarfundur

Starfsmenn RML í kúadómum, f.v. Guðmundur Jóhannesson, Guðrún Hildur Gunnarsdóttir, Kristján Óttar E…
Starfsmenn RML í kúadómum, f.v. Guðmundur Jóhannesson, Guðrún Hildur Gunnarsdóttir, Kristján Óttar Eymundsson, Guðrún Eik Skúladóttir, Hjalti Sigurðsson, Ditte Clausen, Auður Ingimundardóttir, Linda Margrét Gunnarsdóttir og Halla Eygló Sveinsdóttir.

Á árinu 2024 voru skoðaðar 6.552 kýr á 295 búum víðs vegar um landið. Það gerir 22,2 kýr á bú að meðaltali. Helstu niðurstöður kúaskoðunar 2024 hafa verið birtar hérna á vefnum hjá okkur, sjá tengil neðar. Kúaskoðun þessa árs er hafin enda er þetta verkefni sem er stöðugt í gangi. Í síðustu viku hittust dómarar á Hvanneyri til þess að ráða ráðum sínum, samræma beitingu dómskalans og fara yfir ýmis atriði varðandi framkvæmd verkefnisins. Samræmingarfundurinn fór fram samhliða kennslu í kúadómum við Landbúnaðarháskólann. Verkleg kennsla og samræming kúadómara fór fram í fjósinu á Hvanneyri og við það tækifæri smellti Björn Ingi, fjósameistari, af meðfylgjandi mynd af þeim starfsmönnum RML sem koma að kúaskoðun á þessu ári.

Sjá nánar:

Helstu niðurstöður kúaskoðunar 2024