Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Líkt og undanfarin ár geta bændur fengið styrk út á afkvæmarannsóknir á hrútum en verkefnið er styrkt af fagfé sauðfjársamnings.
Skilyrðin eru eftirfarandi:
Styrkupphæðin er 2.000 kr. á hvern veturgamlan hrút. Rétt er að benda á að þegar uppgjörið er gert er hægt að henda út lömbum sem skekkt geta niðurstöður s.s. undanvillingum. Nákvæmast er að nota eingöngu gengna tvílembinga.
Ráðunautar RML geta veitt mönnum aðstoð og leiðbeiningar eftir því sem þörf krefur um tæknileg atriði eða túlkun niðurstaðna. Hins vegar ef menn vilja að ráðunautar sjái alfarið um uppjörið á rannsókninni þá fellur það undir gjaldskylda vinnu.
Leiðbeiningar varðandi uppgjör:
Veljið afkvæmarannsókn í Fjárvís.is. Farið svo í uppgjör og veljið lifandi lömb og síðan kyn. Þá er hægt að sækja hrútalista. Velja þarf síðan hrútana sem eiga að vera með í uppgjörinu. Þá er sóttur lambalisti. Þarna má henda út lömbum ef þurfa þykir. Síðan er valið Reikna uppgjör. Þá koma niðurstöður byggðar á mati á lifandi lömbum. Ef í ljós kemur að einhver hrútanna á ekki nógu mörg afkvæmi má endurtaka leikinn og skilja þá hrúta eftir, ef allt er klárt þá má vista uppgjörið.
Þá er leikurinn endurtekinn fyrir kjötmatshlutann. Farið er í uppgjörið og valið kjötmat. Setja þarf vægi á vöðva og fitu. Almennt er notað 50% vægi á hvorn eiginleika. Síðan er hrútalistinn sóttur, og þar á eftir lambalistinn. Ef allir hrútarnir hafa náð tilskildum fjölda (15 sláturlömbum hver) og búið að undanskilja þau lömb, sem bóndinn telur að eigi ekki heima í samanburðinum, þá er rétt að vista uppgjörið. Þar með er afkvæmarannsóknin frágengin.
ee/okg