Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Undanfarin tvö ár hefur orðið gríðarlegt verðfall á afurðastöðvaverði sauðfjárafurða og hefur það veikt mjög rekstrargrundvöll sauðfjárbúa. Þessi staða hefur mismunandi áhrif milli landssvæða, vegna mismunandi vægis sauðfjárræktar í atvinnulífi einstakra svæða. Flestum er þó ljóst að staðan sem nú er uppi er raunveruleg ógn við þau byggðalög sem reiða sig hvað mest á sauðfjárrækt sem atvinnugrein.
Þegar unnið er með vörur ýmiskonar og þá ekki hvað síst matvöru, er mikilvægt að hafa í frammi stöðuga vöruþróun til að sem best sé hægt að mæta þeim þörfum sem neytendur hafa hverju sinni. Þegar svona árar er mikilvægara en nokkru sinni að styðja við hvers kyns vöruþróun og nýsköpun, sem bændur geta nýtt sér til að auka verðmætasköpun á jörðum sínum og þar með til að styrkja rekstrargrundvöll sinna búa og áframhaldandi búsetu í sveitum. Jafnframt þurfa bændur að leita allra leiða og nýta eins vel og kostur er þann stuðning sem er í boði til framþróunar.
Forsvarsaðilar Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, í samstarfi við RML, hafa ákveðið að hrinda af stað verkefni sem hefur það að markmiði að hvetja til nýsköpunarstarfs í sveitum. Leitast verður við að miðla þekkingu og reynslu þeirra sem þegar hafa farið af stað með nýsköpunarverkefni og styða við hugmyndavinnu og þróun verkefna frá hugmynd til raunveruleika. Markhópur verkefnisins eru bændur á lögbýlum sem eru að velta fyrir sér sölu á hvers kyns framleiðslu eða þjónustu, hvort sem það er á sviði fullvinnslu landbúnaðarafurða eða á öðrum sviðum atvinnulífs.
Verkefninu verður hrundið af stað með fundaherferð. Í framhaldinu verður boðið upp á aðstoð ráðunauta við mótun hugmynda og við áætlanagerð og ekki síst við umsóknaferli til Framleiðnisjóðs. Áhersla verður lögð á að hvetja bændur til að hrinda úr vör hugmyndum sem mögulega hafa verið lengi í farvatninu en ekki komist til framkvæmdar.
Fyrsti áfangi verkefnisins hefst með fjórum hvatningarfundum á Norðvesturlandi, í Dalasýslu og Strandasýslu. Á þessum fundum verða haldnir fyrirlestrar um markmiðasetningu, reynslu fólks sem hefur ástundað vöruþróun eða tekist á við óhefðbunda atvinnuuppbyggingu á sínum jörðum, ásamt leiðbeiningum varðandi styrki þá sem leita má eftir til nýsköpunar. Í framhaldi þessara funda stendur fundargestum sem uppfylla skilyrði Framleiðnisjóðs varðandi styrkveitingar, til boða að fá niðurgreidda aðstoð við vinnslu umsókna til sjóðsins.
Fundarsvæði þessa fyrsta áfanga verkefnisins er eftirfarandi:
Skagafjarðarsýsla, Húnavatnssýslur, Strandasýsla og Dalasýsla. Jafnframt er stefnt að sambærilegri framkvæmd í öðrum landshlutum eins fljótt og kostur er.
Áformað fundatímabil er 22.-28. ágúst. Aðalfyrirlesari fundanna er Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta. Að auki verða fengnir til leiks reynsluboltar í sölu afurða beint frá býli, sem munu miðla af reynslu sinni varðandi þróun og markaðssetningu vara og þjónustu.
Fundirnir verða öllum opnir og eru sem flestir hvattir til að mæta.
Frekari upplýsingar um fundina og verkefnið í heild má nálgast hjá Sigríði Ólafsdóttur verkefnisstjóra og ráðunauti hjá RML.
só/okg