Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Nú eru upplýsingar um tíu naut úr 2018 árgangi komnar á nautaskra.net og meðal þeirra er að finna fyrstu syni Gýmis 11007 og Skalla 11023 sem koma í notkun. Þetta eru eftirtalin naut; Gumi 18016 frá frá Hæli 1 í Eystrihrepp undan Dropa 10077 og Brúði 632 Lagardóttur 07047, Speni 18017 frá Hrafnagili í Eyjafirði undan Gými 11007 og Bunu 2173 Koladóttur 06003, Styrkur 18018 frá Hnjúki í Vatnsdal undan Úlla 10089 og Stiklu 421 Lagardóttur 07047, Máttur 18019 frá Selalæk á Rangárvöllum undan Gými 11007 og Bömbu 1091 Bambadóttur 08049, Bar 18022 frá Ölkeldu 2 í Staðarsveit undan Skalla 11023 og Veru 833 Vindilsdóttur 05028, Biðill 18023 frá Torfum í Eyjafirði undan Gými 11007 og Brúði 448 Bambadóttur 08049, Tangi 18024 frá Vestri-Reyni í Hvalfjarðarsveit undan Lúðri 10067 og 410 Kambsdóttur 06022, Togari 18025 frá Björgum í Útkinn undan Dropa 10077 og Skútu 513 Baldadóttur 06010, Tékki 18026 frá Glitstöðum í Norðurárdal undan Lúðri 10067 og Krúnu 528 Bambadóttur 08049 og Háfur 18028 frá Syðri-Bægisá í Öxnadal undan Skalla 11023 og Skrúfu 565 Bambadóttur 08049.
Gumi 18016, Speni 18017, Styrkur 18018 og Máttur 18019 eru komnir í dreifingu á sumum svæðum og bíða dreifingar á öðrum. Hin nautin sex munu koma til dreifingar á næstu vikum. Að venju er að finna pdf-skjöl á nautaskra.net til útprentunar kjósi menn svo.