Upplýsingar um fjögur ungnaut fædd 2014

Trompás 14070
Trompás 14070

Búið er að bæta við upplýsingum fjögur ungnaut fædd 2014 á nautaskra.net. Um er að ræða naut sem verið er að hefja dreifingu sæðis úr þessa dagana. Þetta eru Skagfjörð 14044 frá Daufá í Skagafirði undan Húna 07041 og Spes 353 Eldsdóttur 04001, Stáli 14050 frá Hlemmiskeiði á Skeiðum undan Legi 07047 og Birnu 805 Reyksdóttur 06040, Unnar 14058 frá Sökku í Svarfaðardal undan Húna 07041 og Unni 636 Fontsdóttur 98027 og Trompás 14070 frá Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði undan Dynjanda 06024 og Ölmu 238 Aðalsdóttur 02039.

Rétt er að benda á að Trompás 14070 er sammæðra Laufási 08003.

Að venju er að finna pdf-skjal með sambærilegum upplýsingum á nautaskra.net sem hægt er að skoða og/eða prenta út. Prentuð útgáfa spjaldanna fer í dreifingu nú á allra næstu dögum.

Sjá nánar:

nautaskra.net

/gj