Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Fagráð í nautgriparækt ákvað á fundi sínum s.l. fimmtudag að setja tvö ný reynd naut í notkun í kjölfar keyrslu á kynbótamati nú að loknu ársuppgjöri. Bæði þessi naut er úr 2014 árgangnum. Þessi naut eru Brjánn 14002 frá Brjánsstöðum í Grímsnesi, undan Vindli 05028 og Heklu 250 Bambadóttur 08049 og Hæll 14008 frá Hæli 1 í Eystrihrepp (Gnúp.), undan Kambi 06022 og Skýlu 474 Hræsingsdóttur 98046. Búið er að uppfæra upplýsingar um reynd naut í notkun hér á nautaskra.net. Þá hefur nýtt kynbótamat verið lesið inn í nautgriparæktarkerfið Huppu.
Úr notkun sem reynd naut falla Fossdal 10040 sem er fullnotaður og Polki 12099 sem lækkaði aðeins í mati.
Nautsfeður til notkunar næstu mánuði verða Bakkus 12001, Sjarmi 12090, Jörfi 13011, Hálfmáni 13022 og Bárður 13027. Þeir Jörfi og Bárður koma nýir inn í hóp nautsfeðra eftir að hafa styrkt sína stöðu.
Þau naut sem koma ný til notkunar fara til dreifingar hjá frjótæknum landsins við næstu sæðisáfyllingu á kútana og ættu að standa öllum bændum til boða innan tíðar.
/gj