Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í maí 2014

Auðlind 593, móðir Afla 11010 og Polka 12099
Auðlind 593, móðir Afla 11010 og Polka 12099

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar í maí 2014 hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar niðurstöðurnar sem nú birtast urðu til á miðnætti aðfaranótt 11. júní var búið að skila skýrslum fyrir síðastliðinn mánuð frá 89% þeirra 580 búa sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 20.480 árskúa á búunum, sem skýrslurnar höfðu borist frá, síðastliðna 12 mánuði var 5.707 kg en var 5.675 kg mánuðinn á undan. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum búum sem skýrslum hafði verið skilað frá á miðnætti aðfaranótt 11. júní var 39,3 og hafði ekki breyst frá seinasta uppgjöri.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum var á búi Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd, sama búi og undanfarna þrjá mánuði. Nytin þar var nú 7.945 kg eftir árskú. Annað í röðinni við uppgjörið núna var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal en þar var reiknuð meðalnyt 7.851 kg eftir árskú. Þriðja búið að þessu sinni var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði, sem hafði skipt um sæti við bú Brúsa ehf. frá síðasta uppgjöri. Á Stóru-Tjörnum reiknaðist nytin 7.768 kg á árskú. Fjórða búið við uppgjör maímánaðar var Hriflubú sf. í Hriflu í Þingeyjarsveit (áður í Ljósavatnshreppi), en þar var reiknuð meðalnyt núna 7.622 kg á árskú. Fimmta búið í röðinni í þetta sinn var bú Jóns og Hrefnu á Hóli í Sæmundarhlíð með reiknaða meðalnyt eftir árskú 7.573 kg. Það bú var nr. fjögur í röðinni við uppgjör aprílmánaðar. Á 29 búum reiknaðist meðalnytin nú 7.000 kg eða meiri en samsvarandi tala var 30 bú við síðasta uppgjör.

Nythæsta kýrin á seinustu 12 mánuðum var Dimmalimm nr. 379 (f. Kistill 00017) í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði en hún mjólkaði nú 12.259 kg. Hún var í fjórða sæti á listanum fyrir mánuði. Kýrin sem reiknaðist önnur í röðinni við lok maímánaðar var Vigga nr. 374 á Egg í Hegranesi í Skagafirði. Nyt hennar var 11.492 kg og hún var þriðja á þessum lista við lok apríl. Þriðja kýrin nú var Huppa nr. 1123 (f. Kappi 01031) á Stóra-Ármóti í Flóa og mjólkaði hún 11.371 kg síðustu 12 mánuðina. Huppa var í fimmta sæti við seinasta uppgjör. Fjórða kýrin nú var Gola nr. 970 (f. Hjarði 06029) á Gili í Borgarsveit í Skagafirði sem mjólkaði 11.328 kg á uppgjörstímabilinu. Fimmta kýrin á listanum að þessu sinni var Bomba nr. 157 (f. nr. 94 undan Fonti 98027) á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði. Nyt hennar var 11.317 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrslnanna í nautgriparæktinni

/sk