Fræðslufundur um fóðrun mjólkurkúa - Egilsstöðum

Fræðslufundur um fóðrun mjólkurkúa verður haldinn í Fjóshorninu á Egilsstöðum þriðjudaginn 1. apríl kl. 13.00. Farið verður yfir helstu þætti er varða fóðrun til afurða og meiri verðefna í mjólk. Sérstök áhersla verður lögð á sumarbeit og nýtingu grænfóðurs. Á fundinum flytja ráðgjafar frá RML erindi sem byggjast meðal annars á erindi frá norskum sérfræðingi í fóðrun, Jon Kristian Sommerseht, sem var á landinu um miðjan mars.

Kúabændur og aðrir áhugasamir velkomnir.

gh/okg