Yfirlit fyrri viku á Gaddstaðaflötum

Yfirlitssýning fyrri vikunnar á Gaddstaðaflötum fer fram föstudag og laugardag, 6.-7. júní (til hádegis 7. júní).  

Röð flokka verður hefðbundin, byrjað á elstu hryssum kl. 08:00 á föstudagsmorgni, þá 6 vetra hryssur, 5 vetra o.s.frv.

Nánara skipulag og hollaraðir birtast svo fljótt sem verða má eftir að dómum lýkur í kvöld. 

ph/okg