Yfirlitssýning á Sörlastöðum 28. maí

Yfirlitssýning á Sörlastöðum fer fram miðvikudaginn 28. maí og hefst klukkan 09:00. 

Röð flokka verður hefðbundin, byrjað á elstu hryssum, þá 6 vetra, 5 vetra og 4ra vetra hryssur, yngstu stóðhestar og upp í elstu flokka. 

Hollaraðir verða birtar svo fljótt sem verða má í kvöld eftir að dómum lýkur. 

ph/okg