Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Í dagskrá Landsmóts er liður sem heitir kynning á úrvali kynbótahrossa sem tímasettur er kl. 9:30 að morgni laugardagsins 5. júlí. Hér er lagt upp með að nýta þann takmarkaða tíma sem er til ráðstöfunar til að bjóða upp á kynningu á þeim hrossum sem búa yfir ákveðnum úrvals gangeiginleikum en ná samt ekki verðlaunasæti á mótinu. Svipaður dagskrárliður var á LM 2004 á Hellu og þótti mörgum sú útfærsla skemmtileg. Miðað við þann hestakost sem væntanlegur er til þátttöku nú ætti þessi kynning að geta orðið frábært atriði.
Þar sem tíminn er takmarkaður þarf að takmarka fjölda hrossa. Því er lagt upp með að hrossin uppfylli eitthvert af eftirtöldum skilyrðum samkvæmt kynbótadómi á Landsmóti:
Að lokinni yfirlitssýningu á föstudegi yrðu þessi skilyrði endurskoðuð með tilliti til fjölda. Ef fjöldinn reynist óviðráðanlegur verður sett krafa um ákveðna lágmarks aðaleinkunn hrossa. Ef hægt er að auka fjöldann verða skilyrðin hugsanlega útvíkkuð.
Landsmótskveðjur
F.h. RML
Eyþór Einarsson
Pétur Halldórsson
/okg