Ungfolaskoðun

Fyrirhugað er að bjóða upp á að skoða unga ógelta fola í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum þriðjudaginn 26. maí ef nægur áhugi reynist fyrir hendi. Skoðunin verður framkvæmd af Þorvaldi Kristjánssyni ábyrgðarmanni hrossræktar hjá RML og gefur hann skriflega umsögn um hvern fola. Farið verður heim á bæi og þarf að greiða 6.200 kr m.vsk. fyrir fyrsta folann sem skoðaður er á hverjum stað en 3.720 kr (m.vsk.) fyrir hvern fola umfram það. Athugið að því betri sem aðstaðan er til að meta byggingu hestanna og hreyfingar, því öruggari verður dómurinn og því getur verið heppilegt að safna folum saman á ákveðna staði þar sem góð aðstaða er til að meta þá. Panta þarf í síðasta lagi föstudaginn 22. maí hjá Vigni í síma 896-1838 eða með því að senda tölvupóst á vignir@rml.is

vs/okg