Ungfolaskoðanir og fyrirlestur á Fljótsdalshéraði

Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar hjá RML, verður á ferðinni á Fljótsdalshéraði þriðjudaginn 5. maí. Boðið verður upp á ungfolaskoðanir þennan dag og tekur Einar Ben Þorsteinsson á móti skráningum í síma 896-5513.

Einnig verður Þorvaldur með eftirfarandi fyrirlestur: Ganghæfni íslenskra hrossa - Áhrif sköpulags og skeiðgens.

Fyrirlesturinn verður haldinn á Gistihúsinu Egilsstöðum og hefst klukkan 20:00 sama dag (5. maí).

Allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.

þk/okg