Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Frá Bændasamtökum Íslands:
Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 470/1999 um sama efni.
Verkefni sjóðsins eru:
Að veita fé til þróunarverkefna í hrossarækt sem nýtast til styrktar íslenska hrossastofninum.
Að veita lán og styrki til kaupa á sérstökum úrvalskynbótagripum ef sannað þykir að þeir verði fluttir úr landi að öðrum kosti. Hér væri um að ræða gripi sem gætu haft úrslitaáhrif á erfðabreytileika í stofninum s.s. litafjölbreytni, eða byggju yfir einstæðu kynbótagildi í þeim eiginleikum sem prýða íslenskan hest.
Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2015. Nánari upplýsingar fást hjá Bændasamtökunum.
Frestur til að skila inn umsóknum er til 5. desember 2015 og skal umsóknum skilað til:
Fagráð í hrossarækt, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík.
Fagráð í hrossarækt
þk/okg