Tilkynning vegna röntgenmynda af hækilliðum stóðhesta

Vegna verkfalls dýralækna sem starfa hjá Matvælastofnun hefur lestur af röntgenmyndum af hækilliðum stóðhesta og birting niðurstaðna í WorldFeng legið niðri. Þetta er forsenda þess að hægt sé að skrá stóðhesta sem eru 5 vetra og eldri á kynbótasýningar.

Bændasamtök Íslands sóttu um undanþágu frá nefndu verkfalli í þeim tilgangi að sérgreinadýralækni hrossasjúkdóma væri heimilt að lesa úr röntgenmyndum af stóðhestum og birta niðurstöður í WorldFeng. Þeirri beiðni var hafnað án rökstuðnings. Fagráð í hrossarækt harmar þessa niðurstöðu en hvetur ennfremur alla eigendur 5 vetra hesta til að láta mynda þá þeirra sem stefnt er með í dóm, þannig að sérgreinadýralæknir hrossasjúkdóma geti greint myndirnar um leið og verkfall leysist.

þk/okg