Sýningagjöld á kynbótasýningum 2014

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur samþykkt tillögu fagráðs í hrossarækt að gjaldskrá fyrir kynbótasýningar. Gjaldskráin tekur strax gildi og verða sýningargjöld sumarið 2014 innheimt samkvæmt henni, fyrir fullnaðardóm 20.500 kr. og fyrir byggingar/hæfileikadóm 15.500 kr.

Alls eru 18 sýningar áætlaðar í sumar fyrir utan Landsmót og við hvetjum sýnendur og eigendur til að kynna sér áætlaða sýningadaga vel og þær reglur sem gilda um skráningar hrossa á sýningarnar, undirbúning hrossanna, s.s. skráningar í Worldfeng, DNA-sýnatöku og röntgenmyndir, sem og reglur um járningar, reiðtygi og annan búnað.

Allar upplýsingar má finna hér á heimasíðunni með því að smella hér

geh/okg