Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Opnað verður fyrir skráningar á kynbótasýningar miðsumars þann 10. júní næstkomandi. Að þessu sinni verða miðsumarssýningar á tveimur stöðum, Gaddstaðaflötum við Hellu og á Hólum í Hjaltadal. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML, www.rml.is en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. Leiðbeiningar um skráningarkerfið má finna í tengil hér fyrir neðan.
Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar.
Verði skráningar færri en búist er við verður dögum fækkað eða sýningar sameinaðar eftir þörfum. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Hér að neðan má sjá hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur á sýningarnar.
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á vefnum þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.
Sýningargjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 28.500 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 21.900 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 15.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 12.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.
Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 14. ágúst. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga.
Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðu okkar eða í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.
Sjá nánar:
Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu
Skrá hross á kynbótasýningu
Ýmsar upplýsingar um kynbótasýningar
hes/okg