Skráningar á kynbótasýningar vorsins

Í dag 7. apríl var opnað fyrir skráningar á allar kynbótasýningar vorsins þannig að nú er um að gera að drífa í að skrá. Skráning og greiðsla fara fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á skráningarsíðuna hér í gegnum heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, www.rml.is en á  forsíðunni er valmöguleikinn „skrá á kynbótasýningu“. Einnig má finna hér á heimasíðunni undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu.

Síðasti skráningardagur er að jafnaði viku fyrir sýningu, nema í þeim tilfellum þar sem sýning fyllist, þá lokast sjálfkrafa á sýninguna, þó svo skráningarfresturinn sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Lena Reiher og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

Dags.

Staður

Loka skráningar- og greiðsludagur

24.4-25.4

Sauðárkrókur

Þriðjud. 16. apríl

12.5- 16.5

Víðidalur

Sunnudagur 4. maí

14.5-16.5

Eyjafjörður

Þriðjudagur 6. maí

19.5-23.5

Hafnarfjörður

Sunnudagur 11. maí

19.5-23.5

Blönduós

Sunnudagur 11. maí

26.5-30.5

Selfoss

Sunnudagur 18. maí

26.5-30.5

Skagafjörður

Sunnudagur 18. maí

26.5-27.5

Hornafjörður

Sunnudagur 18. maí

28.5-30.5

Fljótsdalshérað

Þriðjudagur 20. maí

3.6-6.6

Eyjafjörður

Mánudagur 26. maí

2.6-13.6

Gaddstaðaflatir*

Sunnudagur 25. maí

2.6-13.6

Borgarfjörður*

Sunnudagur 25. maí

*Sýningarnar á Gaddstaðaflötum og í Borgarfirði 2.-13. júní eru tveggja vikna sýningar. Við skráningu verður hægt að velja á hvora sýningarvikuna hross eru skráð. Gildir þá það sama og áður hefur komið fram að um leið og önnur sýningarvikan fyllist er lokað fyrir skráningar á hana og eigendur/umráðamenn verða að velja hina vikuna. Hægt verður að skrá sama hrossið á báðar vikurnar. Jafnframt er vert að taka það fram að mánudagurinn 9. júní er annar í hvítasunnu og því hefst seinni vika þessara sýninga þriðjudaginn 10. júní.

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Verð fyrir fullnaðardóm er 20.500 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 15.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr(hjá)rml.is. Endurgreiddar eru 13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endur-greiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí.

Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu fyrir hrossið sem kom í staðinn. Minnum á að ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt og allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Liggja þarf fyrir í WF að úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri sé búið að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts. Stóðhestum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni eða með því að hringja í okkur í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

hes/okg