Skráningar á kynbótasýningar mið- og síðsumars - Síðasti skráningardagur á Gaddstaðaflatir mánudaginn 14. júlí

Þann 20. júní var opnað fyrir skráningar á kynbótasýningar miðsumars og þann 14. júlí verður opnað fyrir skráningar á síðsumarsýningar. Skráning og greiðsla fer fram á netinu í gegnum síðuna www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hér í gegnum forsíðu RML en þar má finna valmyndina "skrá á kynbótasýningu“. Hér á heimasíðunni má einnig finna undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu.

Síðasti skráningardagur er að jafnaði viku fyrir sýningu nema í þeim tilfellum þar sem sýning fyllist, þá lokast sjálfkrafa fyrir skráningar á sýninguna, þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Þeim sem þurfa aðstoð er bent á að hafa samband í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Hér fyrir neðan má sjá sýningar sem boðið er upp á mið- og síðsumars og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

Dags.

Staður

Loka skráningar- og greiðsludagur

21.7-25.7

Gaddstaðaflatir 

Mánudagur 14. júlí

28.7- 30.7

Dalvík 

Föstudagur 18. júlí

11.8-15.8

Borgarfjörður 

Föstudagur 1. ágúst

11.8-15.8

Skagafjörður 

 Föstudagur 1. ágúst

18.8-20.8

Blönduós 

 Föstudagur 8. ágúst

18.8-22.8

 Gaddstaðaflatir

 Föstudagur 8. ágúst


Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á heimasíðu RML þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu. 

Verð fyrir fullnaðardóm er 20.500 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 15.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll í síma 516-5000 fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreiddar eru 13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu fyrir hrossið sem kom í staðinn.

Við minnum á að ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt og allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir alla stóðhesta fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka úr þeim blóðsýni og röntgenmynda þá vegna spatts. Stóðhestum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni www.rml.is eða með því að hringja í starfsfólk RML í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

hes/okg