Síðsumarsýning kynbótahrossa á Selfossi 17.-21. ágúst

Síðsumarsýning kynbótahrossa á Selfossi fer fram dagana 17. - 21. ágúst. Dómar hefjast kl 12:30 mánudaginn 17. ágúst, aðra daga hefjast dómar stundvíslega kl. 8:00 (fyrstu hross þurfa því að vera mætt í mælingu aðeins fyrir kl. 8:00). Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum undir Búfjárrækt > Hrossarækt > Röðun hrossa á kynbótasýningum. Eigendur og sýnendur eru beðnir að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best. Yfirlitssýning verður föstudaginn 21. ágúst og verður auglýst frekar þegar nær dregur.

Sjá nánar: 

Röð hrossa 

Röð eftir knöpum 

hes/okg