Síðsumarsýning kynbótahrossa á Miðfossum 19.-21. ágúst

Síðsumarsýning kynbótahrossa á Miðfossum fer fram dagana 19. - 21. ágúst.  Dómar hefjast kl 12:30 miðvikudaginn 19. ágúst. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum undir Búfjárrækt > Hrossarækt > Röðun hrossa á kynbótasýningum. Eigendur og sýnendur eru beðnir að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best. Yfirlitssýning verður föstudaginn 21. ágúst og verður auglýst frekar þegar nær dregur.

Sjá nánar

Röð hrossa 

Röð eftir knöpum 

 

hes/okg