Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Kynbótasýning fer fram á Stekkhólma dagana 28. til 29. maí og á Akureyri dagana 30. maí til 1. júní, verði þátttaka næg. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.
Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Rétt er að árétta að einungis er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu. Þegar greiðsla hefur tekist þá á að koma kvittun í tölvupósti, ef kvittunin kemur ekki hefur skráning trúlega ekki tekist. Þeir sem hafa aðgang að WF geta með því að fara inn í „sýningar“ séð hvort hrossið er komið inn á sýninguna. Ef hrossið birtist þar hefur allt gengið upp og hrossinu verður úthlutað tíma. Röðun hrossa verður síðan birt hér á heimasíðunni um miðja næstu viku.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er föstudagurinn 18. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 26.000 kr. en fyrir sköpulags- eða hæfileikadóm 20.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst, í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 11.000 kr. fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí nk.
Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir "Kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. má finna leiðbeiningar um hvernig á að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hross@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir stóðhesta fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Ekki er hægt að skrá hryssur og geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga.
Sjá nánar:
Upplýsingar varðandi kynbótasýningar
hes/okg