Röðun hrossa á kynbótasýningu í Spretti 30. maí - 10. júní.

Kynbótasýning verður í Spretti í Kópavogi dagana 30. maí til 10. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 30. maí. Yfirlitssýningar verða föstudagana 3. júní og 10. júní. Alls eru 264 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röð hrossa (fyrri vika) 

Röð knapa (fyrri vika) 

Röð hrossa (seinni vika) 

Röð knapa (seinni vika) 

 

lr/okg