Röðun hrossa á Gaddstaðaflötum dagana 4.-8. júní

Kynbótasýning verður á Gaddstaðaflötum dagana 4. til 8. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 4. júní. Yfirlitssýning verður föstudaginn 8. júní. Alls eru 134 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:

Röðun hrossa á kynbótasýningum

hes/okg