Röðun hrossa á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum 6. til 9. júní

Kynbótasýning verður á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 6. til 9. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 þriðjudaginn 6. júní. Yfirlitssýning verður föstudaginn 9. júní og hefst hún kl. 8:00.  Alls eru 95 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" eða í tengli hér að neðan.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar

Röð hrossa á kynbótasýningum

hes/okg