Röðun hrossa á Gaddstaðaflötum og í Víðidal 11.-15. júní

Kynbótasýning verður á Gaddstaðaflötum dagana 11. til 15. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 11 júní. Vegna fjölda hrossa mun yfirlitssýningin verða á föstudag og laugardag 15. og 16. júní, nánari tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur. Alls eru 275 hross skráð á sýninguna. 

Á sama tíma verður kynbótasýning í Víðidal í Reykjavík, dagana 11. til 15. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 11. júní. Yfirlitssýning verður síðan á föstudeginum 15. júní. Alls eru 132 hross skráð á sýninguna. 

Búið er að birta hollaraðanir fyrir sýningarnar hér á vefnum og má nálgast þær í gegnum tengilinn hér neðar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:

Röðun hrossa á kynbótasýningum 

hes/okg