Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Boðið verður upp á þrjár kynbótasýningar vikuna 20. til 24. ágúst. Sýningar verða á Gaddstaðaflötum við Hellu, Hólum í Hjaltadal og í Borgarnesi ef næg þátttaka verður. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á miðnætti í kvöld 10. ágúst.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins www.rml.is en þar er valmynd á forsíðunni „skrá á kynbótasýningu“. Á sömu heimasíðu undir kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar má finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá á kynbótasýningu.
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.
hes/gj