Miðsumarssýning á Dalvík - skráning opin til 20. júlí

Miðsumarssýning kynbótahrossa fer fram á Dalvík, 27.-29. júlí n.k. verði þátttaka næg.  Sýningin hefst á mánudegi og ræðst af földa skráninga hvaða dag yfirlitssýning verður.  Opið verður fyrir skráningu fram að miðnætti mánudaginn 20. júlí n.k. (athugið lengdur skráningafrestur).  Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Síðasti skráningar- og greiðsludagur er mánudagurinn 20. júlí. Verð fyrir fullnaðardóm er 21.700,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 16.700,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst, í síma 516-5005. Einnig er hægt að senda tölvupóst á agg@rml.is

Endurgreiddar eru kr. 13.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 10.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. September.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir hvern stóðhest fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Ekki er hægt að skrá hryssur til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.

/AGG