Kynbótasýningasumar 2025

Nú styttist óðfluga í kynbótasýningar vors og sumars ´25. Skynsamlegt fyrir ræktendur og þjálfara að huga að þeim aðgengiskröfum hrossa sem tilheyra dómsstörfum. Að afgreiða DNA-sýnatökur og fleira vel tímanlega:

  • 4v. stóðhestar / DNA-sýni úr þeim sjálfum – fyrirliggjandi DNA-sýni úr báðum foreldrum.
  • 5v. stóðhestar – eða eldri v. fyrsta dóm / DNA-sýni úr þeim sjálfum + blóðsýni (KE-sýni) til varðveislu á Keldum.
    • Fyrirliggjandi DNA-sýni úr báðum foreldrum.
    • Hæklamynd.
  • Hryssur: DNA-sýni úr þeim sjálfum.
  • Geldingar: DNA-sýni úr þeim sjálfum.

Starfsfólk RML, dýralæknar og IS-örmerkingamenn, sinna hefðbundnum DNA-sýnatökum hrossa (stroksýni úr nös eða hársýni).
Dýralæknar sinna blóðsýnum og hæklamyndatökum.

Þá má minna á þjónustu RML, hrossamælingar, sem stendur öllum hesteigendum til boða hvenær sem er ársins. Þá eru öll hefðbundin mál tekin af hrossi og vistuð í WorldFeng. Þjónusta sem e.t.v. hentar hrossum sem fyrirhugað er að auglýsa og selja, eða hrossum á leið í keppni þar sem leyfileg hófalengd er háð mældri hæð á herðar (M1 / stangarmál).

/agg