Kynbótasýning á Gaddstaðaflötum við Hellu 2.-14. júní

Búið er að raða í holl á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 2.-14. júní n.k. Alls eru skráð 473 hross á sýninguna. Dómar munu hefjast mánudaginn 2. júní kl. 8.00 og standa dagana 2.-5. júní. Yfirlitssýning eftir dóma fyrri vikunnar hefst föstudaginn 6. júní og lýkur fyrir hádegi laugardaginn 7. júní.

Dómar munu hefjast á nýjan leik þriðjudaginn 10. júní kl. 8.00 og standa til og með 12. júní. Yfirlitssýning seinni vikunnar hefst svo föstudaginn 13. júní og lýkur fyrir hádegi laugardaginn 14. júní.

Nánari tímasetningar yfirlitssýninga verða auglýstar síðar.

Við biðjum knapa og umráðamenn hrossa að virða áætlaðan sýningartíma og mæta tímanlega með hross til mælinga þannig að ekki verði óþarfa tafir á dómsstörfum. Mælingar hefjast að öllu jöfnu 15 mínútum áður en dómar viðkomandi holla hefjast.

Að lokum óskum við öllum er að sýningunni koma góðs gengis.

Sjá nánar:

Röðun hrossa á kynbótasýningum

hes/gj