Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Kynbótasýning fer fram á Dalvík dagana 28.-30. júlí verði þátttaka næg. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er Skrá hross á kynbótasýningu.
Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er föstudagurinn 18. júlí. Verð fyrir fullnaðardóm er 20.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 15.500,- kr.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst, í síma 516-5000.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
Endurgreiddar eru kr. 13.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 10.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september.
Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir "Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. má finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir hvern stóðhest fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng.
Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu.
hh/okg