Hollaröðun á Melgerðismelum 3.-6. júní

Hér má sjá hollaröðun fyrir kynbótasýninguna á Melgerðismelum í komandi viku.  Alls eru 74 hross skráð á sýninguna. Dómar munu hefjast þriðjudaginn 3. júní kl. 12.30, á miðvikudaginn kl 9:00 og fimmtudaginn kl. 08:00.  Yfirlitssýning eftir dóma fer fram föstudaginn 6. júní.

Nánari tímasetningar yfirlitssýninga verða auglýstar síðar.

Athugið að mælingar hefjast um 15 mín. áður en dómar hefjast.

Hollaröðun á Melgerðismelum