Hollaröðun á kynbótasýningu á Fljótsdalshéraði 27.-28. maí

Kynbótasýning verður á Iðavöllum á Fljótsdalshéraði þriðjudaginn 27. maí og hefst hún kl. 13:00.

Yfirlitssýning verður miðvikudaginn 28. maí og hefst kl. 9:00. Alls eru 19 hross skráð til leiks.

Búið er að birta hollaröðun á sýningunni hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn „Röðun hrossa á kynbótasýningu“ hér hægra megin á forsíðunni.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin þannig dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Hollaröð 

Hollaröð eftir knöpum 

hes/okg