Fyrirhuguð kynbótasýning á Blönduósi 19.-23. maí fellur niður

Ekki náðist tilskilinn lágmarksfjöldi á fyrirhugaða sýningu á Blönduósi og fellur hún því niður. Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 516-5000. 

Vert er að benda þeim á sem hafa hugsað sér að sýna hross á Norðurlandi að eingöngu eru tvær sýningar eftir í þeim landshluta fyrir landsmót, sú fyrri verður í Skagafirði dagana 26.-30. maí og sú síðari á Melgerðismelum dagana 3.-6. júní. 

Nánari upplýsingar um kynbótasýningarnar er að finna hér

/okg