Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Nú að afloknum kynbótasýningum sumarsins er rétt að líta yfir farinn veg. Sýningarnar urðu 12 alls, 8 vorsýningar, 1 miðsumarssýning og 3 síðsumarssýningar. Á þessu sýningum voru dæmd 1.428 hross, 1.064 í vor, 99 miðsumars og 265 síðsumars. Á Suðurlandi voru dæmd 948 hross á sex sýningum, Vesturlandi 177 hross á tveim sýningum, Norðurlandi 287 hross á þremur sýningum og Austurlandi 16 hross. Hér er ekki meðtalið Landsmót á Hólum í Hjaltadal en þar voru dæmd 157 hross. Í töflu 1 má sjá fjölda hrossa á hverri sýningu.
Tafla 1. Kynbótasýningar sumarið 2016 | |||
Sýningarstaður | Fullnaðardómur | Sköpulagsdómur | Alls á sýningu |
Sörlastaðir | 82 | 19 | 101 |
Selfoss | 109 | 17 | 126 |
Selfoss miðsumarss. | 90 | 9 | 99 |
Sprettur | 238 | 27 | 265 |
Gaddstaðaflatir | 189 | 32 | 221 |
Gaddstaðaflatir, síðsumarss. | 117 | 19 | 136 |
SUÐURLAND ALLS: | 825 | 123 | 948 |
Miðfossar | 96 | 14 | 110 |
Miðfossar, síðsumarss. | 63 | 4 | 67 |
VESTURLAND ALLS: | 159 | 18 | 177 |
Akureyri | 44 | 6 | 50 |
Hólar í Hjaltadal | 155 | 20 | 175 |
Melgerðismelar, síðsumarss. | 58 | 4 | 62 |
NORÐURLAND ALLS: | 257 | 30 | 287 |
Iðavellir | 12 | 4 | 16 |
AUSTURLAND ALLS: | 12 | 4 | 16 |
SAMTALS: | 1.253 | 175 | 1.428 |
Fjöldi sýndra hrossa hefur verið talsvert breytilegur milli ára. Í töflu 2 má sjá fjölda sýndra hrossa síðast liðinn 15 ár.
Tafla 2. Fjöldi dæmdra kynbótahrossa s.l. 15 ár. | |||||||||||||||
Ár | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
Fjöldi dóma | 1.421 | 1.184 | 1.530 | 1.210 | 1.418 | 1.340 | 1.841 | 1.720 | 1.301 | 2.132 | 1.980 | 1.552 | 1.471 | 1.197 | 1.428 |
*Landsmót og fjórðungsmót eru ekki með í tölum um heildarfjölda dæmdra hrossa. |
Yfirleitt eru fleiri hross sýnd á landsmótsárum eins og sjá má í töflu 2. Árið 2010 var óvenjulegt en þá setti smitandi hósti í hrossum strik í reikninginn þannig að fresta varð landsmóti. Það varð síðan til þess að mikið var sýnt af hrossum á árunum 2011 og 2012 en bæði árin voru haldin landsmót. Fjöldi sýndra hrossa var svipaður á árunum 2014 og 2016 en hins vegar var óvenju lítil þátttaka í fyrra sem skýrist trúlega af ákaflega köldu vori og að ekki var landsmót það ár. Vegna ræktunarstarfsins er ákaflega verðmætt að sem flest ung ódæmd hross skili sér til dóms ár hvert.
hes/gj