Hollaröð á yfirlitssýningu á Sörlastöðum 22. maí

Hollaröðin á yfirlitssýningunni á Sörlastöðum í Hafnarfirði á morgun fimmtudaginn 22. maí er nú komin á vefinn. Sýningin hefst kl. 9:00. Röðun flokka verður eftirfarandi: 7 vetra hryssur og eldri frá kl. 9:00 til 11:30. Frá kl. 11:30 til 12:00 verða þrjú holl af 6 vetra hryssum sem síðan verður haldið áfram með eftir hádegishlé en það er áætlað á milli kl. 12:00 og 13:00.

Dómum á 6 vetra hryssum haldið áfram kl. 13:00 og ætti að vera lokið um kl. 14:00 en þá taka við dómar á næstu aldursflokkum sem hér segir:

5 vetra hryssur
4 vetra hryssur
4 vetra stóðhestar
5 vetra stóðhestar
6 vetra stóðhestar
7 vetra og eldri stóðhestar

Sjá nánar:

Hollaröð á yfirlitssýningu á Sörlastöðum 22. maí 2014 

hes/gj