Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Þá er rétt að huga tímalega að því að taka DNA-sýni úr honum og foreldrum hans því stóðhestar fá ekki dóm nema að hafa sannað ætterni. Hægt er að panta sýnatöku í síma 516-5000 eða senda tölvupóst á rml@rml.is.
Þó svo búið sé að taka stroksýni úr nös á stóðhesti þarf einnig að taka blóðsýni úr honum ef hann er 5 vetra eða eldri. Blóðsýni eru geymd en stroksýnum er hent um leið og þau hafa verið greind.
Í því skyni að draga úr tíðni spatts er skylda að röntgenmynda hækla á öllum stóðhestum sem náð hafa fimm vetra aldri og koma til dóms. Niðurstöður þurfa að liggja fyrir í WorldFeng áður en hesturinn er skráður á sýningu. Heimilt er að taka myndina á því ári sem hesturinn nær 5 vetra aldri.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að hægt sé að skrá hross á kynbótasýningu. Allt tekur þetta sinn tíma þannig að ef eitthvað af þessu er ekki klárt nú þegar, er um að gera að drífa í því. Stóðhestum sem koma inn í tíma sem önnur hross hafa verið skráð á og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá þegar þeir koma í mælingu. Ekki verður hægt að krefjast endurgreiðslu.
Eru hrossin þín tilbúin fyrir kynbótadóm sumarsins? | ||||
Eftirtalin atriði þurfa að vera skráð í WorldFeng áður en hross eru skráð á kynbótasýningu: | ||||
Örmerki | DNA-greining | Blóðsýni | Spattmynd | |
Stóðhestar 4 v. | X | X | ||
Stóðhestar 5 v. og eldri | X | X | X | X |
Hryssur | X |
hes/gj