Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Milli jóla og nýárs voru gefnar út nýjar reglugerðir um framkvæmd búvörusamninga, þ.e. almennan stuðning í landbúnaði, garðyrkju, nautgripa- og sauðfjárrækt. Ekki er um miklar breytingar að ræða á formi stuðnings milli ára og flestar breytingar eingöngu til þess að skerpa á eða skýra ákveðin atriði. Þó verður að geta þess að greiðslumark mjólkur er aukið um eina milljón lítra og verður 145 milljónir lítra á verðlagsárinu 2018. Varðandi stuðning í sauðfjárrækt koma ákvæði um fjárfestingastuðning til framkvæmda á þessu ári og við bætist einnig svokallaður býlisstuðningur.
Þá hefur Matvælastofnun reiknað virði greiðslumarks mjólkur og sauðfjár sem innleysa má til ríkisins árið 2018 samkvæmt ákvæðum í reglugerðum um stuðning í nautgripa- og sauðfjárrækt.
Bændur og aðrir sem hagsmuna eiga að gæta eru hvattir til að kynna sér efni reglugerðanna vel.
Sjá nánar:
Reglugerð um almennan stuðning við landbúnað
Reglugerð um stuðning við garðyrkju
Reglugerð um stuðning í nautgriparækt
Reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt
/gj