Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar eftir nýliðinn nóvember

Hlynur frá Svertingsstöðum II í Eyjafirði, sonur Magna 20002 og Eikar 1421. Mynd frá Nautastöðinni á…
Hlynur frá Svertingsstöðum II í Eyjafirði, sonur Magna 20002 og Eikar 1421. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuði, að liðnum nóvember, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað fyrir hádegi hinn 12. desember. Eins og fyrir mánuði síðan fetum við okkur áfram með birtingu fleiri niðurstaðna fyrir kjötframleiðsluna en áður. Vonandi verður það einhverjum til fróðleiks. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en benda má á töflurnar sem tengill er í hér neðst í fréttinni.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 445 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði nú til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.

Reiknuð meðalnyt 24.680,0 árskúa á búunum 445 var 6.534 kg. eða 6.795 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 445 búum var 55,5.

Mest meðalnyt árskúa á uppgjörstímabilinu var eins og undanfarið á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, en meðalnyt árskúa þar stóð nú við lok nóvember í 9.165 kg.. Annað á listanum að þessu sinni var bú Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi, Rang. þar sem meðalárskýrin skilaði 8.867 kg. að meðaltali á síðustu 12 mánuðum. Þriðja í röðinni hér var bú Brynjólfs og Piu – Hellisbúsins ehf., í Kolsholti 1 þar sem meðalnyt árskúnna reyndist 8.835 kg.

Nythæst á síðustu 12 mánuðum, eins og fyrir mánuði síðan, var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 15.956 kg. á umræddu tímabili. Önnur í röðinni var Epoxy 752 (f. Gnýr 15040) á Tannstaðabakka við Hrútafjörð sem mjólkaði 14.029 kg. síðustu 12 mánuði. Í þriðja sæti var Kola 1049 (f. Græðir 18004) í Stóru-Mörk 1 en nyt hennar var 13.881 kg.

Alls náðu 205 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir síðasta mánuð hafði verið skilað frá undir hádegi þann 12. desember, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim hópi mjólkuðu 63 kýr 12.000 kg. eða meira og 16 af þeim skiluðu afurðum yfir 13.000 kg. á tímabilinu. Af þeim síðasttöldu mjólkuðu síðan tvær kýr meira en 14.000 kg. og önnur þeirra mjólkaði mikið yfir 15.000 kg.

Meðalfjöldi kúa á þeim 112 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 30,3 við lok október en árskýrnar á þeim búum voru á þeim tíma 27,4 að jafnaði. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.205,4 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.589 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 256,9 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 732,1 dagur.

Hinir tveir nýju listar sem hafa bæst við hið birta uppgjör fylgja nú eins og við lok október. Annar listinn er yfir bú þar sem meðalvöxtur sláturgripa náði 350 g. á dag eða meira á þeim 12 mánuðum sem uppgjörið nær yfir. Þar er í fyrsta sæti að þessu sinni búið á Efstalandi í Öxnadal þar sem meðalgripurinn óx um 616,5 g. hvern dag, en gripirnir voru aldir í 467 daga að meðaltali. Næsta bú er Reykir í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem 534,4 daga gamlir gripir náðu að vaxa að meðaltali 607,7 g. á dag. Þriðja búið á listanum er Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem gripirnir uxu að meðaltali 583,3 g. á dag á 627,8 daga vaxtartíma.

Einnig birtist nú listi yfir bú þar sem fallþungi gripa var 250 kg. að meðaltali eða meira. Fyrst á þeim lista er Breiðaból á Svalbarðsströnd þar sem skrokkþungi 800,7 daga gamalla gripa var að meðaltali 399,5 kg. Næst kemur Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem meðalfallþungi 627,8 daga gamalla gripa var 375,2 kg. Þriðja efsta búið á þessum lista er Saurbær í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem skrokkþungi 719,6 daga gamalla gripa var 363,9 kg. að jafnaði.

Rétt er að minnast þess að þetta er aðeins brot af því sem er að finna á þessum listum sem nýverið tóku að birtast hjá okkur.

Þess er vert að geta hér að lokum að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2024