Yfirlit miðsumarssýningar á Gaddstaðaflötum

Yfirlitssýning miðsumarssýningar á Gaddstaðaflötum fer fram fimmtudaginn 25. júlí og hefst stundvíslega kl. 8:30. Röð flokka verður eftirfarandi:

  • 7v. og eldri hryssur
  • 6v. hryssur (fyrstu 3 holl í flokki)
  • Hádegishlé
  • 6v. hryssur - framhald
  • 5v. hryssur
  • 4v. hryssur
  • Stóðhestar (4v., 5v., 6v., 7v. og eldri)

Áætluð lok yfirlits um kl. 19. Nánari röðun hrossa í holl má nálgast hér á heimasíðunni seinna í kvöld, þann 24. júlí að afloknum dómstörfum.

ph/okg