Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Á fagþingi nautgriparæktarinnar sem nú stendur yfir í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar í Reykjavík var afhent viðurkenning fyrir besta naut Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fætt árið 2007. Að þessu sinni hlaut kynbótanautið Sandur 07014 frá Skeiðháholti 1 á Skeiðum þessa nafnbót. Guðný Helga Björnsdóttir, formaður fagráðs í nautgriparækt, afhenti Jóni Vilmundarsyni öðrum ræktenda Sands viðurkenninguna og við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tekin.
Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðarmaður í nautgriparækt hjá RML, fór nokkrum orðum um Sand fyrir afhendingu verðlaunanna. Þar kom m.a. fram að Sandur var fæddur 9. mars 2007 í Skeiðháholti 1, undan Glanna 98026 frá Stóra-Ármóti og Jónu 654 í Skeiðháholti 1, dóttur Sprota 95026 frá Kirkjulæk í Fljótshlíð. Ræktendur Sands voru hjónin Jón Vilmundarson og Guðrún Helga Þórisdóttir, bændur í Skeiðháholti 1.
Í umsögn um dætur Sands kemur fram að þær séu góðar mjólkurkýr og hlutfall próteins í mjólk þeirra hátt meðan að hlutfall fitu er um meðallag. Þetta eru júgurhraustar kýr með mjög vel borin júgur og mjög góða júgurfestu en júgurband er ekki áberandi. Spenar eru aðeins langir en vel staðsettir. Mjaltir eru úrvalsgóðar og skap kúnna um meðallag.
Fagráð í nautgriparækt, Nautastöð BÍ og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins óska ræktendum Sands til hamingju með viðurkenninguna með þökkum fyrir ræktun þessa mikla kynbótagrips.
/gj